søndag den 30. august 2009

ammæli

Áttum æðislegan dag í dag með smá veislu, köku og dansi með góðu fólki..litli félagslyndi kúturinn minn yndislegi fór á kostum og elskaði að vera í veislu:) Knús og koss

fredag den 21. august 2009

Omö ágúst 2009











































Elskurnar smá sumarinnlegg..er búin að vera afar ódugleg að setja inn myndir sökum leti en set inn nokkrar stemningsmyndir héðan núna og svo sumaralbúm síðar. Þessar myndir eru frá ströndinni og tivolí og svo ferðinni okkar til Omö hér í vikunni en eyjan liggur í Stórabelti og er afar falleg. Við fengum lánaðan heilan bóndabæ þar sem bjó köttur og vinir hans, dádýr voru á ferðinni sem við sáum reyndar ekki og svo var eplatré í garðinum og brómberjatré, ströndin í
göngufæri og yndisleg náttúra og veðursæld út um alla eyju, ;) Mæli með þessarri paradís fyrir þá sem virkilega vilja njóta lífsins í ró og næði:) knús